´Ný síđa
Jæja fyrst þessi síða er í svona rugli ætla ég að skipta aftur í blog.central
www.blog.central.is/sara1012
Jæja fyrst þessi síða er í svona rugli ætla ég að skipta aftur í blog.central
www.blog.central.is/sara1012
Hellú hellú![]()
Þá er komin helgi og ég sit hérna ein heima á Dósinni, á að vera að læra en nenni bara ekki neinu!
Örn fór út á sjó í gær á Grunó og ég veit barasta ekki alveg hvenær hann kemur aftur... Bara vonandi sem fyrst
veit ekki alveg hvað ég á að gera af mér á meðan hann er í burtu....
Í gær var náttfatadagur í vinnunni. Þá mættu öll börnin í náttfötum og auðvitað við starfsfólkið líka! Svo var haldið náttfataball og allir fengu popp og djús
"Mjög cosy að fá að mæta í náttfötum í vinnuna"
Þegar ég vaknaði um morguninn var allt fullt af snjó úti svo ég ákvað að taka náttfötin bara með og klæða mig í þau niðri í vinnu í staðinn fyrir að fara í þeim út í kuldann. Sem betur fer tók ég þessa ákvörðun því gáfaða ég stökk út, opnaði bílinn og geymdi hurðina opna á meðan ég startaði bílnum og ætlaði svo að fara út að skafa. En bíllinn minn er svo sniðugur að vera með regnskinjara (þá fara rúðuþurrkurnar í gang um leið og það byrjar að rigna) svo auðvitað fóru rúðuþurrkurnar í gang og ýttu snjóskaflinum sem var kominn á framrúðuna beint inn í bíl, yfir mig og yfir sætið og allt!!!![]()
Gærdagurinn fór svo bara í það að slappa af... Ég nennti ALLS EKKI NEINU svo ég var bara heima og fór bara snemma að sofa.....
Dagurinn í dag er svo ekkert búinn að vera mikið skárri... Ég er búin að vera að læra eitthvað og svo bara heima að láta mér leiðast!
En Hulda Birna á afmæli í dag
Til hamingju með daginn sæta mín!![]()
En núna ætla ég að halda áfram að reyna að vera dugleg að læra... Þýðir víst ekkert annað!
Hellú Hellú![]()
Jæja maður verður nú að koma með annað blogg fyrst maður fékk sig til að byrja að blogga....
Um helgina fór ég suður með mömmu og pabba og við gistum heima hjá Kristófer bróðir og Kristvin Mána en Elín var bara í verslunarferð í útlöndum
Ástæðan fyrir því að við fórum suður var sú að Biggi frændi átti 30 ára afmæli og hélt upp á það í veislusal í valsheimilinu
Það var rosalega gaman að sjá hann og alla þá sem maður þekkti og líka ekkert smá flott veisla!
Ég gerði nú aðeins meira í bænum heldur en að fara í afmælið. Þegar við komum í bæinn snemma á laugardagsmorgni fór ég með Kristófer að horfa á Kristvin Mána á fótboltaæfingu. Hann var semsagt að byrja að æfa fótbolta með Leikni og gengur bara rosalega vel
Ótrúlega gaman að fara og horfa á hann! Hlaupandi um í Arsenalbúningnum! Eftir æfinguna ákváðum við að fara saman í nýju leikfangabúðina sem var að opna þarna hjá Smáralindinni Toys "R" us eða hvað sem hún heitir. Og verð ég nú bara að segja að ég hef aldrei lent í annari eins geðveiki! Kristófer var búinn að lofa að fara með Kristvin Mána þangað og þegar við komum var biðröð... Það var nú frekar lítil biðröð þegar við komum meðað við það hvernig þetta var þegar við komumst út aftur! Ég get svo svarið það að mér hefur aldrei liðið eins illa að fara inn í búð áður. Ég vissi ekki að við íslendingar værum svona klikkaðir. Maður kom þarna inn með Kristvin þennan litla gutta og ég get svo svarið það að fólk var að missa sig þarna inni! Þarna tróðst fólkið reif dót niður úr öllum hillum og hlóð því upp í körfuna hjá sér hélt svo áfram og hugsaði ekkert um börnin í kringum sig heldur tróðust þau bara undir! Þetta var rosalegt. Þegar við vorum að bíða í biðröðinni eftir að geta borgað það sem við keyptum stóð maður og fylgdist með geðveikinni..... Þarna var aðstaða til að pakka inn pökkum, þar sá maður fólkið rúlla upp nokkrum rúllum af pappír og taka með sér heim, svo kom sjúkrabíll að húsinu og inn komu sjúkramenn og lögreglumenn því einhver hafði hrunið í gólfið, þarna var fólk með nokkrar fullar körfur af leikföngum og svo allt í einu kemur kelling með körfu keyrir utan í allt og alla og segir svo " fyrirgefiði ég er ekkert að troðast" Haha.... Ég hélt ég yrði ekki eldri! Mikið var ég fegin að sleppa þaðan út!
Eftir dótabúðina fórum við smá heim og fórum svo í dýrabúð.... Ég get svarið það að ég verð eins og versti geðsjúklingur þegar ég kemst inn í svona búðir! Mig langar alltaf svo til að kaupa mér dýr! hehe..... Þarna voru þessir litlu sætu kanínuungar sem mig langaði sjúklega í!
Sandra kom svo og hitti mig í dýrabúðinni og við fórum saman í Kringluna..... Eins og það er alltaf þegar maður er ekki með neinn pening þá er FULLT FULLT sem manni langar í! En mamma og pabbi redduðu því og´lánuðu mér fyrir pilsi, skyrtu, vesti, úlpu og bol
"Takk fyrir það" og "Takk fyrir hittinginn Sandra mín"
En að öðru en reykjavíkurferðinni.....
Þessi dagur er búinn að vera frekar slappur eitthvað. Mér er búið að vera svo ill í maganum og með hausverk og bara eitthvað slöpp síðan ég vaknaði svo þetta hefði nú alveg geta verið skemmtilegri vinnudagur.![]()
Annars styttist alltaf meira og meira í helgina.....
Ég ákvað semsagt að skella mér bara á uppskeruhátíðina en ekki á bæjarárshátíðina (langaði samt rosalega mikið að vera á báðum stöðum). Þetta á örugglega eftir að verða rosalega gaman! Veislumatur frá potturinn og pannan og svo styrktarsjóðsballið á eftir![]()
En núna ætla ég að hætta og fara að læra! Hafiði það gott![]()
þá er kominn fimmtudagur....
Og allir orðnir svo gamlir og lúnir að engin nennir að gera neitt í kvöld.... Sandra er að fara norður svo ég verð örugglega bara ein heima að hafa það cosy....
Ég er að drepast úr svefnleysi.... er búin að vaka og vaka á nóttunni til að vinna einhverjar skýrslur og reyna að koma öllu frá mér svona í lokin
En þetta fer að verða búið......
Svo fer maður bara norður á morgun
Góðan daginn![]()
ÉG er að verða svo dugleg að ég er bara farin að henda nýju bloggi inn á hverjum degi.....
Ég gleymdi samt að segja ykkur í hverju ég lenti á mánudaginn. Þannig var að Sandra var ekki heima og ég ekki með lyklana mína af húsinu og ég alveg að sálast úr hungri þannig að ég ákvað að fara út í sunnubúð.. Ég byrjaði á því að fara fram á stigagang í skónna mína og skellti hurðinni að íbúðinni og fattaði þá að ég gleymdi að taka lásinn af.... Allt í lagi með það.. ég hugsaði bara að ég mundi bíða eftir að Sandra kæmi heim mundi bara sitja framm á gangi þangað til. En ég var nú samt eitthvað að velta me´r upp úr þessu þegar ég tók eftir því að ég var komin út og skellti líka húsinu í lás þannig að núna var ég læst ÚTI!
Ég rölti út í sunnubúð og var að leyta mér af einhverju sem ég gæti fengið mér að borða þegar allt í einu heyrist úr einu horninu " Hvað heitir þú?" með kallaröddu... ég snéri mér við og sá mann sem var örugglega að nálgast sextugt sitja í einhverjum tröððum sem eru þarna í búðinni og drekka kók zero
Ég sagðist heita Sara og hélt svo áfram að leyta mér af einhverju að borða þegar hann spurði mig aftur " Hvers dóttir ertu sara?" Og ég bara Kristjánsdóttir og helt enn eina ferðina áfram að leyta þegar maðurinn segir allt í einu "Þú ert í rauðköflóttum buxum Sara Kristjánsdóttir" (ég var í joe boxer náttbuxum) og ég bara já ég það er satt... og þá sagði hann "Mig langar í buxurnar þínar" og ég bara jáhh þú verður bara að fara og kaupa þér svona buxur. Svo hélt hann áfram að spurja og spurja, Hvort ég ætti afa, hvort ég ætti ömmur, hvort afarnir mínir væru heilbrigðir og fullt fullt meira og hann stóð alltaf fyrir hurðinni á búðinni þannig að ég komst ekki einu sinni út og þorði því heldur valla í hræðslu um að fá hann á eftir mér heim
EN um leið og hann labbaði á bakvið eina búðarhylluna laumaði ég mér út og rölti heim þar sem ég beið í smá stund úti á tröppum eftir Söndrunni minni.......
Jáhh maður er alltaf að lenda í einhverju skondnu hérna í borginni.....
Í gær fór ég í heimsókn til Sigga frænda og fór með honum og Rebekku út að borða á KFC
Ummm.... ég elska kjúlla! Eftir matinn fórum við svo heim til Sigga og spjölluðum smá og svo fór ég bara heim..... Þegar ég var að koma fram hjá lágmúlanum eru einhverjir strákar að flauta og flauta á mig og horfa á mig eins og þeir ætluðu að drepa mig.... þeir voru örugglega í kringum 25 ára og vinkuðu og vinkuðu klesstu sér svo upp við rúðuna svo þeir urðu enþá ljótari en þeir voru fyrir.... En mér var einhvernveginn alveg sama um þá þangað til þeir hættu við að beygja í áttina sem þeir ætluðu að beygja og komu á eftir mér! Þeir eltu mig eiginlega alla leiðina þangað til ég hægði það mikið á mér að þeir fóru á endanum fram úr mér.... HEhe.... þetta var rugl! ![]()
þegar ég kom heim spjallaði smá við Söndru og Esther og fór svo að sofa![]()
Í dag verður svo bara lært og svo tekið smá rúnt með henni Ester minni. Bakið er búið að vera svo slæmt seinustu daga þannig að alltaf þegar ég fer í ræktina hleyp ég allan tímann og lyfti ekki neitt.... HATA AÐ VERA SVONA![]()
En jæja held þetta sé komið gott í bili
bæbæ
Jáhh núna er ég sko glööð
Okkur Söndru langaði svo að fá netið svona rétt í lok vetursins þannig að við ákváðum að spurja Guðmund hvort við mættum borga með honum fyrir þennan mánuð og fá þannig aðgang..þannig að núna erum við sko með þráðlaust hehe..
Þetta var akkurat rétti dagurinn fyrir mig, því ég þurfti að skila erfðafræðiritgerð í gær og mín var að vinna í henni til 4 í nótt... Sjæse
hvað þetta var erfitt verkefni og úff hvað ég er þreytt![]()
Eftir skóla í dag fer ég og næ í bílinn minn afutur og ætla svo að kíkja í smá heimsókn til Sigga frænda í kvöld
Ég verð bara að játa það að ég er það léleg frænka að ég er bara búin að fara einu sinni í heimsókn til hans í ALLAN vetur og ÞÁ VAR ÉG BLIND hahaha.... "sorry siggi minn"
Ég fæ bara samviskubit að hugsa um þetta.....
Annars var ég að skoða felgur í gær! shii hvað það verður ljúft þegar ´bíllinn er orðinn fínn![]()
Annars vantar mig Eðlisfræðikennara sem er til í að hjálpa mér smá fyrir lokaprófið.... ég held ég falli í þessu
skil ekki neitt.....
Bíður sig einhver fram![]()
Ætla samt ekki að hafa þetta lengra í bili
Boj boj